10 skref í sjálfshjálp spilltar og veikrar þjóðar.

1. Fáum óháða útlendinga til að greiða úr spillingunni sem við erum búnir að byggja hér upp.

2. Fáum aðgang að hæfum stjórnendum í Evrópusambandinu. (Það er göngum í Evrópusambandið ef að þeir vilja okkur enn.) Tökum að sjálsögðu upp evru og setjum Matadorpeningana upp í skáp.

3. Gerum hreint á Kvíabryggju og í fjármála og stjórnkerfi okkar.

4. Látum útrásarvíkingana halda eftir andvirði einnar íbúðar í Hlíðunum og einum Daihatsu og gerum restina af þýfinu upptæka í ríkissjóð. (Nei annars, það er meira en þeir gerðu fyrir okkur, látum þá aðeins halda bílnum, en á bílaláni og setjum íbúðina í myntkörfu.)

5. Við þurfum svo annaðhvort að skipta út tungmálinu yfir í annað sem erfiðara er að snúa öllu upp í málalengingar og þvælu eða að senda alla okkar fjölmiðlamenn á sjálfstyrkinganámskeið.

6. Tökum upp einmenningskjördæmi.

7. Búum til  alvöru lýðræði þar sem einn maður fær eitt athvæði.

8. Tökum upp sjálfstæða utnríkisstefnu en hættum að vera töskuberar Engilsaxa.

9. Tökum upp mentorkerfi þar sem við heiðalegt fólk tökum öll að okkur eins og einn arðræningja og ölum hann upp í góðum siðum þegar hann kemur úr afplánun.

10. Segjum upp áskriftinni að Þjóðkirkjunni. Sendum þá út á hinn frjálsa vinnumarkað og sjáum hvort að guð hjálpar þeim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband